Hjúkrunarfræðingur óskast til starfa hjá Blóðbankanum á Glerártorgi og Blóðbankabílnum Björgu. Við bjóðum velkomin í okkar góða hóp nýútskrifaða hjúkrunarfræðinga sem og hjúkrunarfræðinga með reynslu. Starfið er bæði fjölbreytt og krefjandi og mikil tækifæri til faglegrar þróunar. Rík áhersla er lögð á góða og einstaklingsmiðaða aðlögun undir handleiðslu reyndra hjúkrunarfræðinga. Um er að ræða dagvinnu með breytilegan vinnutíma. Starfshlutfall er eftir samkomulagi en getur verið frá 66,7% -100% og er starfið laust nú þegar eða samkvæmt nánara samkomulagi. Í Blóðbankanum starfa um 55 einstaklingar; hjúkrunarfræðingar, náttúrfræðingar, lífeindafræðingar, læknar og skrifstofufólk og er Blóðbankinn eini sinnar tegundar á landinu. Þar er unnið samkvæmt vottuðu gæðakerfi og er markmið alls starfsfólks að viðhalda gæðakerfinu og vinna í samræmi við hlutverk og stefnu Blóðbankans. Blóðbankinn sinnir m.a. söfnun blóðs, blóðhlutavinnslu, geymslu blóðhluta, blóðflokkunum, afgreiðslu blóðhluta og gæðaeftirliti. Vinnuvika starfsfólks í fullri dagvinnu er 36 stundir. Markmiðið er að stuðla að betri heilsu og öryggi starfsfólks og auka möguleika þess til að samþætta betur vinnu og einkalíf. Móttaka blóðgjafa, mat á hæfi þeirra og blóðtaka Öflun blóðgjafa og markaðsstarf Skráning upplýsinga og vinna í gæðakerfi Íslenskt hjúkrunarleyfi Góð íslenskukunnátta nauðsynleg og góður skilningur á ensku Góð tölvukunnátta Fagmennska, nákvæmni og vilji til að tileinka sér nýjungar Gott viðmót, jákvæðni og lipurð í mannlegum samskiptum Sterkur vilji til að standa sig í skemmtilegu og krefjandi starfi Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga hafa gert. Umsókn fylgi náms- og starfsferilskrá ásamt kynningarbréfi og afriti af prófskírteinum og starfsleyfi. Fylgiskjöl skulu vera á pdf formi. Tekið er mið af jafnréttisstefnu Landspítala við ráðningar á spítalanum. Öllum umsóknum verður svarað. Landspítali er lifandi og fjölbreyttur vinnustaður þar sem um 7000 einstaklingar starfa í þverfaglegum teymum og samstarfi ólíkra fagstétta. Framtíðarsýn Landspítala er að þar sé veitt framúrskarandi heilbrigðisþjónusta byggð á vísindum, fagmennsku og umhyggju, öflugu fagfólki og studd með umgjörð og aðbúnaði sem sómi er að. Landspítali hefur hlotið jafnlaunavottun samkvæmt jafnlaunastaðlinum ÍST85:2012, úttekt framkvæmd af Versa vottun ehf. Umsóknir geta gilt í 6 mánuði frá birtingu auglýsingar, sbr. 3. tl. 2. mgr. 2. gr. reglna nr. 1000/2019 um auglýsingar lausra starfa með síðari breytingum. Starfsmerkingar: Heilbrigðisþjónusta, hjúkrunarfræðingur, Tungumálahæfni. íslenska 4/5, enska 3/5 Staðsetning: Gleráreyrar 1, 600 Akureyri Starfshlutfall er 100% Umsóknarfrestur er til og með 25.06.2026 Ína Björg Hjálmarsdóttir Tölvupóstur: ina@landspitali.is Sími: 824-5287 Þjónustuaðili Upplýsingar um starf Starf Hjúkrunarfræðingur - Blóðbankinn Glerártorgi Staðsetning Norðurland eystra Starfshlutfall 100% Starf skráð 08.06.2026 Umsóknarfrestur 25.06.2026 Þjónustuflokkar Opinberir aðilar Stafrænt Ísland Samráðsgátt Reglugerðasafn Stjórnartíðindi Undirskriftalistar Háskólanám Framhaldsskólanám Starfatorg Styrkjatorg Ísland.is app Mínar síður Getum við aðstoðað? Persónuverndarstefna IS Notendaskilmálar