Skrifstofa Mennta- og lýðheilsusviðs óskar eftir metnaðarfullum og öflugum deildarstjóra leikskólamála til að koma að markvissri, samþættri þjónustu. Ráðning er til eins árs frá 1. ágúst 2026 – 31. Júlí 2027. Áhersla er lögð á gott samstarf milli fagfólks og þverfaglega nálgun til að tryggja farsæld barna. Á mennta- og lýðheilsusviði ríkir faglegt umhverfi þar sem metnaður, traust og lausnamiðuð vinnubrögð eru í fyrirrúmi, auk þess sem starfsfólk fær stuðning og tækifæri til þróunar, meðal annars með fræðslu og endurmenntun. Krafa er um sterk tengsl við leik- og grunnskóla, foreldra og aðra samstarfsaðila innan og utan sveitarfélagsins Helstu verkefni og ábyrgð:
Er næsti yfirmaður leikskólastjóra og hefur yfirumsjón og eftirlit með rekstri leikskólannaEr tengiliður á milli leikskóla og rekstraraðila með setu í þeirri stjórnarnefnd sem um málaflokkinn fjallar og framfylgir samþykktum rekstraraðila um málefni leikskóla.Er talsmaður leikskólamála út á við f.h. HafnarfjarðarbæjarEr leikskólastjórum og starfsfólki leikskóla til ráðgjafar um fagleg og rekstrarleg málefniVinnur að gerð fjárhagsáætlana ásamt leikskólastjórum í samvinnu við rekstraraðila og ber ábyrgð á að hún sé haldinUmsýsla með gögn, fyrirspurnir og ýmis málefni fyrir sviðsstjóra, skráning gagna í skjalakerfiTekur þátt í afgreiðslu mannauðsmála og stjórnsýslulegra mála með leikskólastjórumHefur yfirumsjón með upplýsinga- og kynningarmálum, auglýsingum sviðsins í samráði við samskiptastjóra bæjarins og eftirlit með rannsóknum, greiningum og tölfræðiúrvinnslu sviðsinsÖnnur verkefni skv. starfslýsingu
Menntunar- og hæfniskröfur:
Grunnháskólamenntun B.ed, BA, BS, á sviði uppeldis- og menntunarFramhaldsháskólamenntun sem nýtist í starfi s.s. á sviði stjórnunar, reksturs, mannauðsmála eða verkefnastjórnunarÞekking á leikskólastarfiÞekking og reynsla af stjórnun og mannauðsmálumÞekking og reynsla á rekstri og opinberri stjórnsýsluAfburða samskipta- og samstarfshæfniFrumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum og góð skipulagshæfniGeta til að vinna undir álagi og í breytilegum aðstæðumGóð íslensku- og enskukunnátta í ræðu og riti
Um kaup og kjör fer samkvæmt gildandi kjarasamningum Samband íslenskra sveitarfélaga og BHM.Nánari upplýsingar um starfið veitir Fanney Dóróthe Halldórsdóttir, sviðsstjóri Mennta- og lýðheilsusviðs, fanney@hafnarfjordur.is Umsóknarfrestur er til og með 13. apríl 2026Greinargóð ferilskrá, kynningarbréf og prófskírteini fylgi umsókn. Vakin er athygli á stefnu Hafnarfjarðarbæjar að jafna hlutfall kynjanna í störfum hjá bænum og að vinnustaðir bæjarins endurspegli fjölbreytileika samfélagsins.
Höfuðborgarsvæðið | Hafnarfjörður