Laust er til umsóknar fullt starf umsjónarmanns hestahalds og hesthúsa við Hestafræðideild Háskóla Íslands á Hólum. Starfsstöð er við Háskóla Íslands á Hólum. Starfið er unnið á dagvinnutíma, auk þess sem gert er ráð fyrir vinnu þriðju hverja helgi. Einnig er skipulögð bakvakt. Umsjón með daglegum rekstri skólabús, hesthúsa og bújarðar þ.m.t. þrif og gegningar Ábyrgð á hirðingu, heilbrigði og velferð hesta skólabúsins Skipulagning daglegra verkefna og leiðsögn fyrir aðstoðarfólk og nemendur, meðal annars um hirðingu hrossa og umgengni Umsjón með nýtingu lands, beitarstýringu, heybirgðum og viðhaldi girðinga Umsjón með umhirðu og viðhaldi hesthúsa, vinnuvéla, tækja og búnaðar ásamt eftirfylgni með öryggisreglum Aðstoð við rannsóknir og kennslu innan deildar og umsjón með aðföngum og innkaupum í samráði við næsta yfirmann Menntun í búfræði, búvísindum, hestafræði eða iðnmenntun sem nýtist í starfi Reynsla af búrekstri og umhirðu hesta Reynsla af landbúnaðarstarfi, starfi við smíðar eða af sambærilegum verkefnum er kostur Góð íslensku- og enskukunnátta Almenn tölvukunnátta Skipulagshæfni og hæfni í samvinnu og mannlegum samskiptum Ökuréttindi, aukin ökuréttindi og reynsla af notkun landbúnaðartækja er kostur Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og viðkomandi stéttarfélag hafa gert. Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst. Eftirfarandi gögn skulu fylgja umsókn: Ferilskrá Kynningarbréf þar sem fjallað er um hvernig umsækjandi uppfyllir þær hæfnikröfur sem settar eru fram í auglýsingunni og hvað hann telur sig geta lagt af mörkum til starfsins Afrit af prófskírteinum Upplýsingar um umsagnaraðila Öllum umsóknum verður svarað og umsækjendum tilkynnt um ráðstöfun starfsins þegar ákvörðun hefur verið tekin. Umsóknir geta gilt í sex mánuði frá lokum umsóknafrests. Við ráðningu í störf í Háskóla Íslands er tekið mið af jafnréttisáætlun skólans. Vakin er athygli á málstefnu Háskóla Íslands . Háskóli Íslands hefur frá stofnun verið undirstaða atvinnulífs og framfara í íslensku samfélagi. HÍ er jafnframt framsækinn rannsóknarháskóli og virkur þátttakandi í alþjóðlegu vísindasamstarfi. Háskóli Íslands er stærsti háskóli landsins og býður upp á hátt í 400 námsleiðir á grunn-, meistara- og doktorsstigi. Um 14.000 nemendur stunda nám við skólann, þar af yfir 2.000 alþjóðlegir nemar. Við Háskóla Íslands starfa yfir 1.800 manns. Skólinn leggur áherslu á að laða til sín fjölbreyttan hóp starfsfólks og stúdenta í alþjóðlegt fræðasamfélag þar sem akademískt frelsi, fagmennska, jafnrétti, fjölbreytileiki og inngilding eru í öndvegi. 36 stunda vinnuvika hefur verið innleidd í stjórnsýslustörfum skólans. Nánar um Háskóla Íslands, fræðasvið hans og deildir Starfshlutfall er 100% Umsóknarfrestur er til og með 15.10.2026 Auður Inga Ingimarsdóttir Tölvupóstur: audinga@hi.is Víkingur Þór Gunnarsson Tölvupóstur: vikingur@hi.is Þjónustuaðili Upplýsingar um starf Starf Umsjónarmaður hestahalds og hesthúsa Staðsetning Norðurland vestra Starfshlutfall 100% Starf skráð 05.10.2026 Umsóknarfrestur 15.10.2026 Þjónustuflokkar Opinberir aðilar Stafrænt Ísland Samráðsgátt Reglugerðasafn Stjórnartíðindi Undirskriftalistar Háskólanám Framhaldsskólanám Starfatorg Styrkjatorg Ísland.is app Mínar síður Getum við aðstoðað? Persónuverndarstefna IS Notendaskilmálar