Laust er til umsóknar fullt starf doktorsnema við rannsóknarverkefnið Orðaheimurinn batnandi fer , sem miðar að því að styrkja íslenskufærni barna á leikskólaaldri. Um er að ræða íhlutunarrannsókn sem fer fram í leikskólum og er framkvæmd af leikskólakennurum. Rannsóknaverkefnið er styrkt af Rannsóknasjóði Íslands (Rannís) og verður unnið við námsleið í talmeinafræði innan Læknadeildar Háskóla Íslands og er tímabundið til þriggja ára. Sérstök áhersla er lögð á að styrkja íslenskunám fjöltyngdra barna, einkum barna utan höfuðborgarsvæðisins, svo sem á Vestfjörðum, Suðurlandi og Austurlandi. Doktorsneminn hefur svigrúm til að móta áherslur doktorsverkefnisins, til dæmis getur viðfangsefnið snúið að málumhverfi barna heima fyrir og í leikskólanum, mati á tali og málþroska fjöltyngdra barna, tryggð við framkvæmd íhlutunarinnar og félagslegu réttmæti íhlutunarinnar. Verkefnastjórnun og stuðningur við þátttakendur rannsóknarinnar Mælingar á tal- og málþroska Gagnastjórnun, gagnagreining og ritun Meistarapróf í talmeinafræði, en til greina koma prófgráður úr skyldum greinum svo sem sálfræði, uppeldis- og menntunarfræði eða málvísindum. Umsækjandi skal hafa lokið prófi þegar starf hefst. Góð færni í íslensku og ensku. Sjálfstæð vinnubrögð og hæfni í mannlegum samskiptum. Reynsla af starfi með leikskólabörnum, kennurum og foreldrum er æskileg. Þekking á rannsóknaraðferðum (bæði eigindlegum og/eða megindlegum), gagnagreiningaraðferðum er æskileg. Góð tölvukunnátta. Ráðning í starf doktorsnema er háð því að umsókn viðkomandi um doktorsnám hafi verið samþykkt, sbr. Doktorsnám | Heilbrigðisvísindastofnun Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Félag háskólakennara hafa gert. Áætlað er að verkefnið hefjist eigi síðar en í janúar 2027. Mikilvægt er að viðkomandi geti ferðast til svæða utan höfuðborgarsvæðisins vegna gagnasöfnunar. Eftirfarandi gögn skulu fylgja umsókn: Greinargerð, þar sem umsækjandi lýsir hvernig hann uppfyllir skilyrði starfsins, hvers vegna hann hefur áhuga á að vinna verkefnið og hugmyndum sínum um framlag til verkefnisins (hámark 2 blaðsíður). Ferilskrá. Staðfest afrit af prófskírteinum (grunn- og meistaranám) og einkunnadreifing. Upplýsingar um tvo umsagnaraðila þar sem fram koma tengsl við umsækjanda, netfang og símanúmer. Yfirlit yfir birtingar. Umsækjendum er einnig boðið að senda pdf-útgáfu af meistararitgerð sinni (á hvaða tungumáli sem er), sem og aðrar birtingar sem við eiga (hámark 5 skjöl). Öllum umsóknum verður svarað og umsækjendum tilkynnt um ráðstöfun starfsins þegar ákvörðun hefur verið tekin. Umsóknir geta gilt í sex mánuði frá lokum umsóknafrests. Við ráðningu í störf í Háskóla Íslands er tekið mið af jafnréttisáætlun skólans. Vakin er athygli á málstefnu Háskóla Íslands . Háskóli Íslands hefur frá stofnun verið undirstaða atvinnulífs og framfara í íslensku samfélagi. HÍ er jafnframt framsækinn rannsóknarháskóli og virkur þátttakandi í alþjóðlegu vísindasamstarfi. Háskóli Íslands er stærsti háskóli landsins og býður upp á hátt í 400 námsleiðir á grunn-, meistara- og doktorsstigi. Um 14.000 nemendur stunda nám við skólann, þar af yfir 2.000 alþjóðlegir nemar. Við Háskóla Íslands starfa yfir 1.800 manns. Skólinn leggur áherslu á að laða til sín fjölbreyttan hóp starfsfólks og stúdenta í alþjóðlegt fræðasamfélag þar sem akademískt frelsi, fagmennska, jafnrétti, fjölbreytileiki og inngilding eru í öndvegi. 36 stunda vinnuvika hefur verið innleidd í stjórnsýslustörfum skólans. Nánar um Háskóla Íslands, fræðasvið hans og deildir Starfshlutfall er 100% Umsóknarfrestur er til og með 15.10.2026 Kathryn Margaret Crowe dósent Tölvupóstur: kcrowe@hi.is Þjónustuaðili Upplýsingar um starf Starf Doktorsnemi við rannsókn á málþroska fjöltyngdra barna Staðsetning Höfuðborgarsvæðið Starfshlutfall 100% Starf skráð 14.09.2026 Umsóknarfrestur 15.10.2026 Þjónustuflokkar Opinberir aðilar Stafrænt Ísland Samráðsgátt Reglugerðasafn Stjórnartíðindi Undirskriftalistar Háskólanám Framhaldsskólanám Starfatorg Styrkjatorg Ísland.is app Mínar síður Getum við aðstoðað? Persónuverndarstefna IS Notendaskilmálar