Við leitum að öflugum og metnaðarfullum einstaklingi til að ganga til liðs við okkur í lögfræðiinnheimtu í höfuðstöðvum Skattsins í Katrínartúni í Reykjavík. Í lögfræðiinnheimtudeild fer fram vanskilainnheimta og gerð greiðsluáætlana vegna vanskila á sköttum og gjöldum. Deildin er hluti af innheimtu- og skráasviði Skattsins. Skatturinn er framsækinn vinnustaður sem gegnir lykilhlutverki við tekjuöflun ríkis og sveitarfélaga. Með virku eftirliti, rannsóknum og tollgæslu stuðlum við að jafnræði og virkri samkeppni og vernd við samfélagið. Gildi Skattsins eru fagmennska, framsækni og samvinna. Upplýsingagjöf varðandi stöðu mála í síma og tölvupósti ásamt móttöku gjaldenda í afgreiðslu Skattsins í Katrínartúni Gerð greiðsluáætlana í samræmi við gildandi verklag Samskipti við gjaldendur vegna aðfarargerða, nauðungarsölu og gjaldþrota Samskipti við sýslumenn og dómstóla vegna afturkallana og frestana Stúdentspróf, eða annað sambærilegt nám, starfsþjálfun eða reynsla sem nýtist í starfi Gott vald á íslensku og ensku í töluðu og rituðu máli Fáguð framkoma, jákvæðni, þjónustulund og lipurð í mannlegum samskiptum Frumkvæði og metnaður til að ná árangri í starfi Skipulögð, nákvæm og sjálfstæð vinnubrögð Hreint sakavottorð Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Sameyki hafa gert. Umsókn skal fylgja ferilskrá, auk kynningarbréfs, sem inniheldur ítarlegar upplýsingar m.a. um menntun, fyrri störf, umsagnaraðila og annað er máli skiptir. Umsækjendum um störf hjá Skattinum kann að vera gert að leysa verkefni í ráðningarferlinu sem kæmu, auk annarra þátta, heildstætt inn í mat á hæfni þeirra til viðkomandi starfa. Öllum umsóknum er svarað þegar ákvörðun hefur verið tekin um ráðningar. Umsóknir geta gilt í allt að 6 mánuði að loknum umsóknarfresti. Starfshlutfall er 100% Umsóknarfrestur er til og með 17.08.2026 Jóhanna Lára Guðbrandsdóttir deildarstjóri Tölvupóstur: johanna.gudbrandsdottir@skatturinn.is Sími: 442 1000 Þjónustuaðili Upplýsingar um starf Starf Starf í lögfræðiinnheimtu á innheimtu- og skráasviði Staðsetning Höfuðborgarsvæðið Starfshlutfall 100% Starf skráð 05.08.2026 Umsóknarfrestur 17.08.2026 Þjónustuflokkar Opinberir aðilar Stafrænt Ísland Samráðsgátt Reglugerðasafn Stjórnartíðindi Undirskriftalistar Háskólanám Framhaldsskólanám Starfatorg Styrkjatorg Ísland.is app Mínar síður Getum við aðstoðað? Persónuverndarstefna IS Notendaskilmálar
Höfuðborgarsvæðið | Reykjavík