Lögreglustjórinn á Norðurlandi eystra auglýsir lausa til umsóknar stöðu aðalvarðstjóra með aðalstarfsstöð á Akureyri. Gert er ráð fyrir að lögreglustjóri setji í stöðuna til sex mánaða frá og með 1. janúar 2027, með skipun í huga að liðnum reynslutíma. Aðalvarðstjóri er annar tveggja sem fer með fagstýringu löggæsludeildar í samræmi við verkefni í skipuriti. Um dagvinnustarf er að ræða á virkum dögum að meginstefnu frá kl. 08-15 og að hluta 14-22 með bakvaktaskyldu og nauðsynlegri yfirvinnu. Aðalvarðstjórar fara með mannaforráð starfsmanna í löggæsludeild og eru virkir aðgerðastjórnendur. Aðalvarðstjórar í dagvinnu leysa hvern annan af við störf sín. Hlutverk lögreglu er að gæta almannaöryggis og tryggja réttaröryggi; stemma stigu við afbrotum og vinna að uppljóstran brota; greiða götu borgaranna og veita yfirvöldum aðstoð við framkvæmd starfa sinna og halda uppi almannafriði og allsherjarreglu. Verksvið og ábyrgð aðalvarðstjóra má leiða af 7. gr. reglugerðar nr. 1051/2006 um starfstig innan lögreglunnar, auk annarra verkefna sem lögreglustjóri felur honum. En auk þess fara aðalvarðstjórar með verkefnastýringu almennrar löggæslu og samþættingu löggæslu. Stjórnsýslu- og gæðamál, viðburðaskipulag, vaktasmíði, orlofsskipulag, samfélagslöggæslu, umsjón fasteigna og ökutækja lögreglu, löggæslumyndavélar og löggæsludróna, auk þess að vera fulltrúar lögreglustjóra í AST. Umsækjendur skulu hafa lokið prófi frá Lögregluskóla ríkisins eða diplómaprófi í lögreglufræðum sem jafngilda 120 stöðluðum námseiningum, þ.m.t. starfsnámi á vegum lögreglunnar og hafa starfað sem lögreglumenn í að minnsta kosti fimm ár að prófi loknu skv. 2. mgr. 14. gr. reglugerðar nr. 1051/2006 um starfsstig innan lögreglunnar. Mikilvæg hæfni: Þekking og reynsla af lögreglustörfum og stjórnun innan lögreglu. Þekking og/eða reynsla af eftirfarandi er kostur: stjórnun lögregluaðgerða og skipulagningu löggæslu á stærri viðburðum. almannavörnum, aðgerðastjórnun og viðbragðsáætlunum. Þekking á gæðamálum og stjórnsýslu lögreglu. Þekking og/eða reynsla af verkefnastjórn er kostur. Góð þekking á landskerfum lögreglu og góð tölvu- og tækniþekking. Góð íslenskukunnátta, og færni í að tjá sig í ræðu og riti á íslensku og ensku. Önnur menntun og reynsla sem nýtist í starfi. Mikilvægir eiginleikar: Framúrskarandi hæfni í mannlegum samskiptum. Leiðtogafærni, færni til að takast á við og leiða breytingar. Sveigjanleiki og gott álagsþol. Lausnamiðað og jákvætt viðhorf. Frumkvæði og drifkraftur. Sjálfstæði, skipulagshæfni og nákvæm vinnubrögð. Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Landssamband lögreglumanna hafa gert. Umsókn skal fylgja ferilskrá ásamt kynningarbréfi þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og rökstuðningur fyrir hæfni umsækjanda í starfið, auk afrita af prófskírteinum ásamt nöfnum tveggja umsagnaraðila. Umsækjendur eru vinsamlegast beðnir um að vanda umsóknir sínar. Vakin er athygli á því að engan má ráða til starfa hjá lögreglu sem hlotið hefur fangelsisdóm fyrir refsiverðan verknað sem framinn var eftir að hann varð fullra 18 ára eða sýnt af sér háttsemi sem getur rýrt það traust sem starfsmenn lögreglu verða almennt að njóta. Til að staðreyna hvort umsækjandi uppfylli skilyrði 1. mgr. 28. gr. a lögreglulaga nr. 90/1996 er lögreglustjóra heimilt skv. 28. gr. a. sömu laga að afla upplýsinga um umsækjendur úr sakaskrá og málaskrám lögreglu. Umsóknir sem berast eftir að umsóknarfresti lýkur verða ekki teknar til greina. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um skipun liggur fyrir. Athygli er vakin á að umsóknir munu gilda í 6 mánuði frá því að umsóknarfrestur rennur út. Starfshlutfall er 100% Umsóknarfrestur er til og með 02.11.2026 Bergur Jónsson yfirlögregluþjónn Tölvupóstur: bergur.jonsson@logreglan.is Sími: 444-2800 Hjalti Bergmar Axelsson aðstoðaryfirlögregluþjónn Tölvupóstur: hjaltiberg@logreglan.is Sími: 444-2800 Þjónustuaðili Upplýsingar um starf Starf Aðalvarðstjóri - Lögreglustjórinn á Norðurlandi eystra Staðsetning Norðurland eystra Starfshlutfall 100% Starf skráð 09.10.2026 Umsóknarfrestur 02.11.2026 Þjónustuflokkar Opinberir aðilar Stafrænt Ísland Samráðsgátt Reglugerðasafn Stjórnartíðindi Undirskriftalistar Háskólanám Framhaldsskólanám Starfatorg Styrkjatorg Ísland.is app Mínar síður Getum við aðstoðað? Persónuverndarstefna IS Notendaskilmálar