Laus er til umsóknar tímabundin staða hjúkrunardeildarstjóra á bráðamóttöku Heilbrigðisstofnunar Suðurlands (HSU) á Selfossi. HSU leitar að metnaðarfullum og öflugum hjúkrunarfræðingi til að leiða fjölbreytt og krefjandi starf hjúkrunardeildarstjóra bráðamóttöku, tímabundið. Á deildinni starfar samhent teymi heilbrigðisstarfsfólks sem sinnir bráðaþjónustu fyrir íbúa og gesti Suðurlands. Hjúkrunardeildarstjóri er leiðtogi með faglega, mannauðs- og rekstrarlega ábyrgð. Starfið er 100% og veitist frá 15.janúar 2027 til eins árs, eða samkvæmt nánara samkomulagi. Næsti yfirmaður er framkvæmdarstjóri hjúkrunar. Veita faglega forystu í hjúkrun og þjónustu við skjólstæðinga deildarinnar Hafa yfirsýn yfir og leiða þróun, skipulag og gæðamál bráðamóttökunnar Skipuleggja starfsemi deildarinnar í samstarfi við aðra stjórnendur deildarinnar Stýra og skipuleggja störf hjúkrunarfræðinga, sjúkraliða og annarra starfsmanna deildarinnar Bera rekstrarlega ábyrgð á starfsemi Tryggja öryggis-, gæða- og umbótastarf Taka þátt í klínísku starfi og teymisvinnu eftir þörfum Framfylgja stefnu, markmiðum og áherslum HSU Íslenskt hjúkrunarleyfi Stjórnunarmenntun og/eða reynsla af stjórnun æskileg Farsæl reynsla af stjórnun og leiðtogahlutverki æskileg Framúrskarandi hæfni í mannlegum samskiptum Brennandi áhugi á þróun og eflingu þjónustu Frumkvæði, metnaður og hæfni til að leiða breytingar og umbætur Góð hæfni í tjáningu í ræðu og riti, bæði á íslensku og ensku Sjálfstæði í starfi, áreiðanleiki, drifkraftur og árangursmiðað viðhorf Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga hafa gert. HSU veitir heilsugæslu-, sjúkrahúss- og öldrunarþjónustu ásamt því að annast sjúkraflutninga. Þjónustusvæðið nær frá Þorlákshöfn í vestri til Hafnar í austri. Hlutverk HSU er að móta, þróa og útfæra heilbrigðisþjónustu í umdæminu og tryggja íbúum Suðurlands og öðrum þjónustuþegum jafnan aðgang að bestu heilbrigðisþjónustu sem völ er á að veita hverju sinni. Þjónustumarkmið HSU byggja á gildum okkar um fagmennsku, virðingu og samvinnu. Velferð og þarfir þjónustuþega eru okkar leiðarljós. Starfshlutfall er 100% og veitist frá 15. jan 2027 til eins ár eða samkvæmt samkomulagi. Starfshlutfall er 100% Umsóknarfrestur er til og með 16.10.2026 Ingibjörg Rafnsdóttir Tölvupóstur: ingibjorg.rafnsdottir@hsu.is Þjónustuaðili Upplýsingar um starf Starf Hjúkrunardeildarstjóri bráðamóttöku HSU - tímabundin staða Staðsetning Suðurland Starfshlutfall 100% Starf skráð 06.10.2026 Umsóknarfrestur 16.10.2026 Þjónustuflokkar Opinberir aðilar Stafrænt Ísland Samráðsgátt Reglugerðasafn Stjórnartíðindi Undirskriftalistar Háskólanám Framhaldsskólanám Starfatorg Styrkjatorg Ísland.is app Mínar síður Getum við aðstoðað? Persónuverndarstefna IS Notendaskilmálar