Heilbrigðisstofnun Vesturlands óskar eftir sjúkraflutningamanni til starfa til að sinna bakvöktum og útköllum. Meta áverka eftir slys, veita fyrstu hjálp og flytja sjúklinga á sjúkrastofnun ef með þarf. Umhirða sjúkrabíla og umsjón með að allur búnaður sé til staðar og í lagi. Sjúkraflutningamenn þurfa að geta unnið undir talsverðu álagi sem tengist því að koma að fólki í mjög erfiðum aðstæðum. Unnið eftir gildandi lögum og reglugerðum og starfsreglum stofnunarinnar. Viðurkennt nám í sjúkraflutningum og starfsleyfi landlæknis er kostur. Gilt ökuskírteini er skilyrði og kostur að vera með gild ökuréttindi til að stjórna vörubifreið (C eða C1-réttindi). Góð íslensku og ensku kunnátta er skilyrði. Gerð er krafa um áreiðanleika í starfi, hæfni til að sinna fjölbreyttum verkefnum og góða færni í mannlegum samskiptum. Sjúkraflutningamaður þarf að vera í góðu líkamlegu og andlegu formi. Hreint sakavottorð Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Landssamband slökkviliðs- og sjúkraflutningamanna hafa gert. Með umsókn skulu fylgja upplýsingar um menntun og fyrri störf auk afrits af ökuskírteini og sakavottorði. Starfshlutfall er 0% Umsóknarfrestur er til og með 20.10.2026 Sigurður Einar Sigurðsson Tölvupóstur: sigurdur.e.sigurdsson@hve.is Henrike Stuehff Tölvupóstur: henrike.stuehff@hve.is Sími: 432-1414 Þjónustuaðili Upplýsingar um starf Starf Sjúkraflutningamaður Hólmavík Staðsetning Vestfirðir Starfshlutfall 0% Starf skráð 06.10.2026 Umsóknarfrestur 20.10.2026 Þjónustuflokkar Opinberir aðilar Stafrænt Ísland Samráðsgátt Reglugerðasafn Stjórnartíðindi Undirskriftalistar Háskólanám Framhaldsskólanám Starfatorg Styrkjatorg Ísland.is app Mínar síður Getum við aðstoðað? Persónuverndarstefna IS Notendaskilmálar