Heilbrigðisstofnun Austurlands (HSA) óskar eftir að ráða sjúkraliða til afleysingar í heimahjúkrun með aðalstarfsstöð í Neskaupstað. Starfshlutfall 80% og veitist starfið frá 15. nóvember 2026 til 31. ágúst 2027, með möguleika á framlengingu að þeim tíma loknum. Almenn störf sjúkraliða í heimahjúkrun ásamt tilfallandi störfum. Um er að ræða vaktavinnu; morgun-, kvöld- og helgarvaktir. Aðalstarfsstöð er í Neskaupstað ásamt tilfallandi afleysingu í heimahjúkrun innan Fjarðabyggðar. Íslensk sjúkraliðaréttindi. Lögð er áhersla á metnað í starfi, stundvísi, skipulögð vinnubrögð, jákvæðni og sveigjanleika. Lipurð og áreiðanleiki í samskiptum eru skilyrði. Íslenskukunnátta og ökuréttindi áskilin. Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Sjúkraliðafélag Íslands hafa gert. Umsóknum um auglýst störf skal skilað rafrænt til HSA . Öllum umsóknum verður svarað. Tekið er mið af jafnréttisstefnu HSA við ráðningar. Tóbaksnotkun er ekki heimil á vinnutíma innan HSA. HSA starfar á þremur fagsviðum; heilsugæslu-, hjúkrunar- og sjúkrasviði en alls eru starfsstöðvarnar fjórtán talsins. Áhersla er lögð á samvinnu þvert á byggðarlög. Stofnunin þjónar rúmlega 11.000 íbúum frá Djúpavogi til Bakkafjarðar, auk ferðamanna sem sækja Austurland heim. HSA vill byggja þjónustu sína á mannvirðingu, þekkingu og þverfaglegri samvinnu enda slagorð stofnunarinnar, samvinna um velferð. Starfshlutfall er 80% Umsóknarfrestur er til og með 20.10.2026 Margrét Þóra Óladóttir Tölvupóstur: margret.oladottir@hsa.is Ragnheiður Jara Rúnarsdóttir Tölvupóstur: ragnheidur.j.runarsdottir@hsa.is Þjónustuaðili Upplýsingar um starf Starf Sjúkraliði í heimahjúkrun - Fjarðabyggð - Afleysing Staðsetning Austurland Starfshlutfall 80% Starf skráð 05.10.2026 Umsóknarfrestur 20.10.2026 Þjónustuflokkar Opinberir aðilar Stafrænt Ísland Samráðsgátt Reglugerðasafn Stjórnartíðindi Undirskriftalistar Háskólanám Framhaldsskólanám Starfatorg Styrkjatorg Ísland.is app Mínar síður Getum við aðstoðað? Persónuverndarstefna IS Notendaskilmálar
Austurland | Neskaupstaður