Heilbrigðisstofnun Austurlands (HSA) óskar eftir að ráða starfsmann í afleysingu í ræstingar og/eða störf í þvottahúsi hjá þjónustudeild HSA á Seyðisfirði. Starfshlutfall er 80% eða samkvæmt samkomulagi. Staðan er laus nú þegar og veitist í 4 - 6 vikur með möguleika á lengri tíma. Ræstingar og/eða störf í þvottahúsi hjá HSA Seyðisfirði. Lögð er áhersla á metnað í starfi, stundvísi, skipulögð vinnubrögð, jákvæðni og sveigjanleika. Lipurð og áreiðanleiki í samskiptum eru skilyrði. Íslenskukunnátta áskilin. Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og AFL Starfsgreinafélag hafa gert. Umsóknum um auglýst störf skal skilað rafrænt til HSA . Öllum umsóknum verður svarað. Tekið er mið af jafnréttisstefnu HSA við ráðningar. Tóbaksnotkun er ekki heimil á vinnutíma innan HSA. HSA starfar á þremur fagsviðum; heilsugæslu-, hjúkrunar- og sjúkrasviði en alls eru starfsstöðvarnar fjórtán talsins. Áhersla er lögð á samvinnu þvert á byggðarlög. Stofnunin þjónar rúmlega 11.000 íbúum frá Djúpavogi til Bakkafjarðar, auk ferðamanna sem sækja Austurland heim. HSA vill byggja þjónustu sína á mannvirðingu, þekkingu og þverfaglegri samvinnu. Starfshlutfall er 80% Umsóknarfrestur er til og með 19.06.2026 Halla Dröfn Þorsteinsdóttir Tölvupóstur: halla.d.thorsteinsdottir@hsa.is Þjónustuaðili Upplýsingar um starf Starf Starfsmaður í þjónustudeild - Seyðisfjörður - ræsting og/eða þvottahús - Afleysing Staðsetning Austurland Starfshlutfall 80% Starf skráð 09.06.2026 Umsóknarfrestur 19.06.2026 Þjónustuflokkar Opinberir aðilar Stafrænt Ísland Samráðsgátt Reglugerðasafn Stjórnartíðindi Undirskriftalistar Háskólanám Framhaldsskólanám Starfatorg Styrkjatorg Ísland.is app Mínar síður Getum við aðstoðað? Persónuverndarstefna IS Notendaskilmálar
Austurland | Seyðisfjörður