Landhelgisgæsla Íslands óskar eftir að ráða metnaðarfulla og kraftmikla einstaklinga í störf yfirvélstjóra og undirvélstjóra á varðskipum stofnunarinnar. Takmörkuð réttindi í stöðu yfirvélstjóra og undirvélstjóraréttindi í stöðu undirvélstjóra Kunnátta á ACON tölvukerfi og Helicon X3 tölvukerfi er kostur Frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum Framúrskarandi samskipta- og samstarfshæfileikar Snyrtimennska og góð umgengni Góð almenn tölvufærni Góð kunnátta í íslensku og ensku í ræðu og riti Búseta á Norðurlandi er kostur vegna starfa um borð í varðskipinu Freyju Umsækjendur þurfa að standast kröfur Landhelgisgæslunnar um líkamlegt og andlegt atgervi. Einnig skulu starfsmenn uppfylla skilyrði fyrir öryggisheimild samanber varnarmálalög nr. 34/2008 og reglugerð nr. 959/2012. Landhelgisgæsla Íslands er löggæslustofnun sem hefur það hlutverk að sinna löggæslu og eftirliti sem og leit og björgun á hafsvæðinu umhverfis Ísland. Landhelgisgæslan annast einnig framkvæmd á varnartengdum rekstrarverkefnum í umboði utanríkisráðuneytisins sbr. varnarmálalög nr. 34/2008 og samning við utanríkisráðuneytið, þ.m.t. er rekstur öryggissvæða, mannvirkja, kerfa, stjórnstöðvar og ratsjár- og fjarskiptastöðva Atlantshafsbandalagsins. Hjá Landhelgisgæslunni starfar rúmlega 270 manna samhentur hópur sem hefur að leiðarljósi slagorðið: Við erum til taks! Gildi Landhelgisgæslunnar eru: Öryggi – Þjónusta – Fagmennska . Nánari upplýsingar um Landhelgisgæslu Íslands má finna á: www.lhg.is . Umsóknarfrestur er til og með 22. júní 2026 . Umsókn óskast fyllt út á www.intellecta.is og þarf henni að fylgja starfsferilskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og hæfni umsækjanda sem nýtist í starfi. Umsóknir gilda í sex mánuði frá dagsetningu auglýsingar. Áhugasamir einstaklingar, óháð kyni, eru hvattir til að sækja um. Launakjör eru skv. kjarasamningi viðkomandi stéttarfélags og fjármálaráðherra f.h. ríkissjóðs. Starfshlutfall er 100% Umsóknarfrestur er til og með 22.06.2026 Helga Birna Jónsdóttir Tölvupóstur: helga@intellecta.is Sími: 511-1225 Þjónustuaðili Upplýsingar um starf Starf Vélstjóri Staðsetningar Höfuðborgarsvæðið Norðurland vestra Norðurland eystra Starfshlutfall 100% Starf skráð 04.06.2026 Umsóknarfrestur 22.06.2026 Þjónustuflokkar Opinberir aðilar Stafrænt Ísland Samráðsgátt Reglugerðasafn Stjórnartíðindi Undirskriftalistar Háskólanám Framhaldsskólanám Starfatorg Styrkjatorg Ísland.is app Mínar síður Getum við aðstoðað? Persónuverndarstefna IS Notendaskilmálar